Húnavatnshreppur

Húnavatnshreppur

Stuðningur/Hvatning

Húnavatnshreppur gengst fyrir ýmis konar stuðningi og hvatningu til íbúa sinna. Er markmið hreppsnefndar að gefa fólki kost á ýmis konar þjónustu til að auðvelda því búsetu í hreppnum.


Reglur um afslátt af fasteignaskatti í Húnavatnshreppi

1.gr.
Tekjulágum elli- og örorkulífeyrisþegum sem eiga lögheimili í Húnavatnshreppi er veittur afsláttur af fasteignaskatti, samkvæmt ákvörðun sveitarstjórnar ár hvert og reglum þessum, sbr. heimild í 4. mgr. 5. gr. laga nr. 4/1995 um tekjustofna sveitarfélaga.

2.gr.
Þeir aðilar sem uppfylla eftirfarandi skilyrði eiga rétt á afslætti á fasteignasköttum samkvæmt ákvörðun sveitarstjórnar:

a)    Ellilífeyrisþegar 67 ára á álagningarárinu eða eldri, eða örorkulífeyrisþegar sem hafa verið úrskurðaðir 75% öryrkjar.
b)    Þeir sem eru úrskurðaðir 75% öryrkjar á álagningarári eiga rétt á hlutfallslegri lækkun frá því að örorkumat tók gildi.
c)    Viðkomandi búi í eigin húsnæði og hafi ekki af því leigutekjur.
Afsláttur nær einungis til þeirrar íbúðar sem viðkomandi býr í.
Heimilt er að víkja frá þessu ákvæði í allt að þrjú ár dvelji viðkomandi aðili á öldrunarstofnun og að íbúð í eigu hans sé ekki leigð út eða nýtt af skyldmennum.
      d)        Þegar um hjón eða sambúðaraðila er að ræða nægir að annað hjóna eða sambúðaraðila fullnægi því skilyrði að vera elli- eða örorkulífeyrisþegi.


3.gr.
Upplýsingar um tekjur vegna útreiknings er sóttar vélrænt á vef Ríkisskattstjóra í gegnum álagningarkerfi Fasteingaskrár Íslands.  Ekki er þörf á sérstökum umsóknum vegna afsláttar.

4.gr.
Afsláttur af fasteignaskatti er tekjutengdur og er allt að kr. 65.000.-  Afsláttur er hlutfallslegur að teknu tilliti til skattskyldra tekna, þ.m.t. eigna- og fjármagnstekna síðastliðins árs, samkvæmt skattframtali.  Miðað er við sameiginlegar tekjur hjóna og samskattaðs sambýlisfólks.

5.gr.
Fullur afsláttur kr. 65.000,-

Einstaklingar með tekjur allt að kr. 2.203.929,-
Hjón/sambýlisfólk með tekjur allt að kr. 3.081.092,-

80% af fullum afslætti kr. 52.000,-

Einstaklingar með tekjur á bilinu kr.  2.203.929,-  til kr.  2.530.110,-
Hjón/sambýlisfólk með tekjur á bilinu kr. 3.081.092,- til kr. 3.537.095,-

50% af fullum afslætti kr. 32.500,-

Einstaklingar með tekjur á bilinu kr. 2.530.110,- til kr. 3.058.902,-
Hjón/sambýlisfólk með tekjur á bilinu kr. 3.537.095,- til kr. 4.219.755,-

6. gr.
Reglur þessar voru samþykktar á fundi sveitarstjórnar Húnavatnshrepps þann 20. janúar 2009.


Jens P Jensen, sveitarstjóri Húnavatnshrepps.

Annað

    1.    Húnavatnshreppur greiðir námsstyrki til framhaldskólanema árið 2009.

    ·         Greiddur er námsstyrkur til unglinga sem stunda nám í menntaskóla, fjölbrautarskóla eða sambærilegum  menntastofnunum.

    ·         Greiddar eru 55 þúsund krónur  á hverja önn.

    ·         Almennt skal miða við níu annir eftir grunnskóla að 24. aldursári.

    ·         Greiðslur fari fram um miðjan apríl og miðjan nóvember.

    ·        Nemendur þurfa að senda staðfestingu um að þeir stundi fullt nám í viðkomandi skóla til skrifstofu Húnavatnshrepps áður en greiðsla fer fram.


    2.    Húnavatnshreppur styrkir íbúa sveitarfélagsins vegna aksturs umfram 40 km til vinnu utan heimilis kr. 35 kr/km. Átt er við reglulega vinnusókn frá heimili.

(Húnavatnshreppur hætti  að greiða akstursstyrki 1. janúar 2010)

    ·         Greiddur er aksturstyrkur til þeirra sem sækja daglega vinnu frá heimili í Húnavatnshreppi. Greiddar eru kr. 35 á hvern ekinn kílómetra um fram 40 kílómetra akstur á dag.

    ·         Greiðsla fari fram eftirá á þriggja mánaða fresti.

    ·         Sækja þarf um aksturstyrkinn og þarf staðfestingu vinnuveitenda á fjölda vinnudaga.

    ·         Skilyrði fyrir akstursstyrk er að viðkomandi fái ekki greiddan bifreiðarstyrk frá vinnuveitenda.



    3.    Heimaþjónusta verður greidd skv. samningi við Félagsþjónustu A-Hún


    4.    Ákveðið var að sveitarfélagið taki þátt í kostnaði við ristahlið á heimkeyrslur lögbýla í sveitarfélaginu kr. 100.000 á móti greiðslu héraðssjóðs.


Mynd augnabliksins

Teljari

Í dag: 45
Samtals: 188359

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning