Húnavatnshreppur

Húnavatnshreppur

jafnréttisáætlun Húnaba

 
Jafnréttisáætlun Húnavatnshrepps byggir á lögum um jarfnrétti kvenna og karla nr 96/2000.
Jafnréttisáætlunin tekur til stjórnkerfis og atvinnuþátta sveitafélagsins.
Jafnréttisáætlun skal vera aðgengileg öllum í sveitarfélaginu á heimsíðuHúnavatnshrepps.
 
 
Hlutverk og markmið jafnréttisnefndar
Gæta þess að lögum og reglum stjónvalda varðandi jafna stöðu kynjanna sé framfylgt.
Markmið jafnréttisáætlunar er að efla og stuðla að virkri þátttöku kvenna og karla á öllum sviðum samfélagsins.
Fylgja eftir jafnréttisáætlun.
 
Stjórnsýsla
Leitast við að hafa jafnt hlutfall milli kynja í nefndum, ráðum og starfshópum sem starfa á vegum sveitarfélagsins.
 
Atvinnumarkaður
Við auglýsingu á stöðum innan sveitarfélagsins skal þess gætt að auglýsing geri ekki upp á milli kynja.
Við ráðningu skal fylgja jafnréttislögum en þar er leitast við að jafna stöðu kynjanna á atvinnumarkaði.
Við ákvörðun launa sem og fríðinda vegna vinnu skal þess gætt að kynjum sé ekki mismunað.
Leitast skal við að auðvelda fólki að samræma atvinnu og fjölskylduhætti.
 
Skólastarf
Styðja skóla á öllum stigum og kennara þeirra í að efla jafnréttisfræðslu og hugsjón á meðal barna og unglinga.
Með því er hægt að virkja bæði kynin til þátttöku í samfélaginu og búa þau betur fyrir fjölskyldu- og atvinnulífið. Kynna fyrir báðum kynjum störf sem áður hafa verið álitin karla- eða kvennastörf. Gæta þarf þess að námsefni feli ekki í sér kynjamismunun.
 
Íþrótta-, forvarna- og tómstundamál.
Íþrótta- og tómstundanefnd skal veita stúlkum og drengjum sömu tækifæri til íþróttaiðkunar og íþróttafélögin hvött til hins sama. Kynin sitji jöfn að fjárveitingum á vegum sveitarfélagsins til íþróttaiðkunar. Þess skal gætt að stúlkur og drengir hafi sömu möguleika til sumarstarfa á vegum sveitarfélasins.
 
Kynferðisleg áreitni
Kynferðislegt áreiti er ekki liðið. Þeir sem verða fyrri slíkri framkomu eiga rétt á að bera fram kvörtun og skal þeim tryggt að til viðeigandi aðgerða verði gripið.
 
Húnavatnshreppur leggur metnað í að tryggja konum og körlum jöfn áhrif, tækifæri og virðingu. Til að það takist viljum við hvetja alla starfsmenn og starfshópa á vegum sveitafélagsins að taka mið af áætlun þessari í störfum sínum.
 

Mynd augnabliksins

Teljari

Í dag: 47
Samtals: 188361

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning