Flýtilyklar

Fréttir
Svæðisskipulag A- Hún
mánudagur 26.júlí 2010 - Lestrar 25 - Athugasemdir (0)
Breyting á Svæðisskipulagi Austur-Húnavatnssýslu 2004-2016
Samvinnunefnd um svæðisskipulag Austur-Húnavatnssýslu samþykkti þann 9. júní sl. tillögu að breytingu á Svæðisskipulagi Austur-Húnavatnssýslu 2004-2016.
Lesa meira
Samvinnunefnd um svæðisskipulag Austur-Húnavatnssýslu samþykkti þann 9. júní sl. tillögu að breytingu á Svæðisskipulagi Austur-Húnavatnssýslu 2004-2016.
Lesa meira
Íbúahátið Húnavatshrepps
mánudagur 26.júlí 2010 - Lestrar 5 - Athugasemdir (0)
Íbúahátíð Húnavatnshrepps
Ákveðið hefur verið að halda íbúahátíð þann 11. ágúst nk. Hátíðin verður haldinn í Húnaveri og vonast undirbúningsnefnd til að sem flestir sjái sér fært að mæta. Markmiðið með hátíðinni er að sveitungar hittist, gleðjist og eigi góðan dag saman. Þetta er í fjórða skipti sem slík hátíð er haldin og hvetjum við fólk til að hafa samband ef það vill móta dagskrána í ár. Allar hugmyndir eru vel þegnar. Framkvæmdin er í höndum heimilsfólks að Holti á Ásum, Brekkukoti og Brúarhlíð munu þau auglýsa nánari dagskrá síðar.
Kveðja Undirbúningsnefndin
Útboð
miðvikudagur 21.júlí 2010 - Lestrar 14 - Athugasemdir (0)
- ÚTBOÐ -
Jarðvinna við rotþrær og siturbeð
Húnavatnshreppur óskar eftir tilboðum í jarðvinnu við rotþrær og siturbeð við íbúðarhús á lögbýlum í Vatnsdal og Þingi. Um er að ræða jarðvinnu við allt að 10. rotþrær og 19. siturbeð.
Áætlaður verktími er frá miðjum ágúst til 15. október 2010.
Útboðsgögn eru til afhendingar á skrifstofu Húnavatnshrepps á Húnavöllum. Einnig er hægt að fá útboðsgögn send í pósti, eða í tölvupósti.
Tilboð verða opnuð á skrifstofu Húnavatnshrepps á Húnavöllum fimmtudaginn 12. ágúst 2010 kl. 15.00
Húnavatnshreppur áskilur sér rétt til að taka hvaða tilboði sem er, eða hafna öllum.
F.h. Húnavatnshrepps
________________________
Sveitarstjóri Jens P Jensen

Sumarlokun skrifstofu
mánudagur 19.júlí 2010 - Lestrar 10 - Athugasemdir (0)
Vegna sumarleyfa starfsmanna verður skrifstofa Húnavatnshrepps lokuð frá 22. júlí til 3. ágúst nk
Í áríðandi tilfellum má hringja í sveitarstjóra í síma 863-3610 eða skrifstofustjóra í síma 893-4006.
Í áríðandi tilfellum má hringja í sveitarstjóra í síma 863-3610 eða skrifstofustjóra í síma 893-4006.
Á næstunni
Engir viðburðir á næstunni